Feeds:
Færslur
Ummæli

Bara láta ykkur vita

Að ég SNERTI KIRK FRANKLIN!:)

Annars er Danmörk fín:)

Bissý helgi að baki

Já það er sko Busy helgi að baki, skemmtileg þó!!

Eftir vinnu á föstudaginn skelltum við Eva okkur á Glerártorg, versluðum afmælisgjafir og sitthvað fleira. Hún bauð mér svo í mat, sem var mjööög gott, enda kerlan stórgóður kokkur! Eftir að við Jón vorum búin að stríplast um íbúðina, og við öll búin að borða, þá skelltum við Eva og Begga okkur á Mamma Mia, sing Along sýninguna, þar voru forsöngvararnir ekki alveg að gera sig, en sýningin skemmtileg engu að síður.
45 ára afmælisveisla Þorláks Axels var svo næst, en hún var haldin í nýja stórfína húsinu í Naustahverfinu, sem var mjög flott, þar var gætt sér á góðum veitingum og spjallað.

Laugardagurinn rann upp bjartur og fagur, ég dreif mig uppá Súlur, já sko mig. Hópferð með bankanum, við vorum 14 sem lögðum af stað, 2 skokkuðu og voru komin niður aftur áður en við komum upp, 2 snéru við vegna tímaskorts, en restin fór upp, stolt og glöð og skrifaði nafnið sitt í Gestabókina. 1230 metrar víst fjallið. Á leiðinni niður mætti ég svo múttu og pápa sem fóru upp líka. Dugnaðurinn í fjölskyldunni!

Eftir fjallgönguna var brunað heim, skellt sér í sturtu, nánast ekkert teygt, í föt og í afmæli en hún Sunna Mekkín átti afmæli, þaðan var svo farið til Evu og Jóns, og við Eva löbbuðum yfir til Kollu, en þar hittumst við Síma og Þjónustuvers skvísur og elduðum saman. Við Eva stungum svo af og fórum til Emblu, en hún var með kveðjupartý, en skutlan er að fara að flytja til Svíþjóðar, hvorki meira né minna. Ég var hins vegar svo gjörsamlega búin, andlega og líkamlega að ég var komin heim um ellefu leytið!

Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur og silfurverðlaunin tekin í húsið. Þjóðarstoltið fór með mig og ég tárin hrundu niður kinnarnar meðan þeir tóku við verðlaununum. Sko strákana! Restin af deginum fór svo bara í dúllerí og svona, skoðaði eldhúsinnréttingar, kíkti til Emblu, við horfðum á dr. Phil gefa yfirgefnum konum ráð, mikið rosalega sem lífið hans hlýtur að vera fullkomið… Skellti mér svo til Siffu frænku til að skila henni göngustöfunum, þar úðaði ég í mig bláberjum og rjóma og sykri… byrja í aðhaldi á morgun… Við Siffa fórum á Glerártorg í R&L búðina, ég varð ástfangin af sófasetti. Borðaði svo unaðslegan mat með fjölskyldunni í gærkvöldi, keypti svo “ódýrt” bensín, bara 154 kr… Horfði á Law and Order og sofnaði svo svefni hinna réttlátu…

Sko mig, þetta er gjörsamlega tilgangslaust blogg… En ég meina, þau eru ágæt annað slagið:)

Enda á myndum frá Súlunni:

Komin á toppinn!

Komin á toppinn… Jóna Maja, Steina, Kata, Erla, Ásta og Ásgeir

Voða ánægð með að vera komin upp!

Kata og Jóna á leiðinni

Mosi á leiðinni, flottur liturinn

Komnar í matinn til Kollu um kvöldið

Hann var sko ekki slæmur Silungurinn sem Heibba veiddi!!

Já, þetta er nú meiri endæmis vitleysan þarna í borginni. Eins og allir vita…

Nýr meirihluti tók við í dag undir yfirskriftinni Höldum áfram, vantar bara að bæta ruglinu við þarna fyrir aftan.

Ég hefði viljað sjá Tjarnarkvartettinn aftur, enda vann hann vel og gerði margt gott á þessum stutta tíma sem hann var.

En það er bara og bíða og sjá, kosningarnar eftir tæp tvö ár, það verður ansi spennandi að sjá hvernig fer þá…

Annars er ég að byrja í skólanum. Jájájá, fór og keypti skóladót og skólabækur. Mikið sem ég fegin að Ástan mín vinni enn í Pennanum, ekki það að ég hefði sjálfsagt fengið að misnota afsláttinn hjá einhverjum, en ég varð allavega mjög glöð.

Ég fékk í dag svona skóladagbók, það hef ég ekki fengið lengi lengi, mér fannst það mjög skemmtilegt.

Ég er búin núna að eyða síðasta hálftímanum eða svo í vinnunni að skoða hana og aukadótið í henni, milli þess sem ég vinn að sjálfsögðu… En þar er svona ýmislegt, manni til dundurs, hvernig stjörnumerkin eiga saman og margt margt fleira. Ég þarf helst að fá mér svona glimmer penna eða eitthvað til þess að skrifa í hana:-)

Annars er lítið að frétta, styttist óðum í ferðina út til Huldu, sem þýðir að það styttist óðum í Kirk Franklin, jeminn hvað ég get ekki beðið:)

föstudagurinn 13?

Suma daga er ég óheppnari en aðra, það er bara þannig, oft lendir þetta allt á einum degi. Sá dagur var í gær sem sagt.

Ég vaknaði í gærmorgun, hress og kát, enda á leið í flug til borgarinnar, skelli mér fram á bað, lít á úrið mitt og obbossí, úrið stopp! Eins og ég er nú háð því… Jæja, ég skelli mér inn í herbergi og kveiki á ljósinu, en obbobbob sprakk ekki önnur peran (ég er með þríarma ljós inni hjá mér, töluvert langt síðan sprakk á einni) jæja ég klæði mig við lýsinguna frá eina ljósinu sem eftir er, dress mig og rölti svo upp, finn hvergi gleraugun mín, það er að segja þau sem ég var búin að ákveða að ég ætlaði að vera með, svo ég leitaði, en ekkert gert, ákvað að fara niður, þau hlytu að vera í herberginu mínu, labba inn kveiki aftur á ljósinu og obbobobb, þar fór sú þriðja… Jæja, backup plan, nota silfruðu gleraugun í staðin.

Skelli mér til borgarinnar, allt gengur glimdrandi, ég er ofurpæja, í nælonsokkabuxum, pilsi og bol, og háum hælum og læti! Í gærkvöldi, þá var ég svo að labba úr vinnunni og niður á Hallveigarstíg, ég var nefnilega að fara á fund með UJ, er að spjalla við Möggu í Mjóa í gemsanum, ofur ánægð með sjálfa mig rölti ég niður Laugarveginn, kominn pínu hrollur í mann þannig að ég skellti mér í peysuna mína, sem var nýkomin úr þvotti og ilmaði svo vel. Eftir að hafa talaði við Mögguna í töluverða stund, skelli ég á og set símann í töskuna, sé ég þá sjálfa mig speglast í búðarglugga. Hafði þá ekki pilsskömmin og peysan nuddast svona skemmtilega saman, svo pilsið var komið langleiðina uppá rass og ég því búin að sýna fullmikið, bæði framan og aftan! Og ég sem hélt að allir væru bara að horfa því ég væri svo sæt….

Klöngraðist svo til Sigga bróður og Unnar seint í gærkvöldi, var þá búin að vera á hælunum frá því kl 9 um morgunin, tærnar mínar voru svoooo fegnar að komast úr þeim. Var að sálast úr hungri og pantaði mér pizzu, fékk bílinn hjá brósa til að ná í hana, kom aftur heim og opnaði, hafði gaurinn þá ekki sett vitlaust álegg á pizzuna og brennt hana pínu! svo hún var ekkert góð!! Ég var grútspæld, enda þetta uppáhalds pizzastaðurinn minn í borginni… ég át það þó, horfði á evan almigthy og sofnaði yfir þeirri vitleysu…

En jæja, óvissuferðin..

Já, fórum sem sagt inn í Kjarna í keppni, kepptum í bjórdrykkju, grímugerð, hamborgarasteikningu, hamborgaraáti, kollhnísum, höfrungahlaupi, spurningakeppni, textasmíð, söng og fleiru. Læt það að sjálfsögðu fylgja með að liðið mitt vann! Þaðan var haldið í Kalda, þar sem að drukknir Slipparar reyndu við allt sem hreyfðust, þangað til að þeim var hent út, enduðum svo í Krossum, fórum í LaserTag, hoppuðum á trampolíninu, keyrðum bílana og margt fleira.

Hér koma nokkrar myndir:

Komnar í Kalda

Mér var pínu heitt og var pínu sveitt eftir hlaupin og átökin í Kjarna

Ég og Eva í rútunni á leiðinni, ég er alltaf að misskilja pósurnar…

Hanna Guðný í einhverju flippi

Ég og Sigga í hjólitúr á Árskógssandi

Komnar á trampólínið

Ég datt yfirleitt á rassinn, og fannst það mjöööög fyndið

En ég var ekki sú eina sem datt!!

Myndirnar af okkur í Laser Tag eru í hinni tölvunni, sem sagt heima, set þær inn við tækifæri,

þar til síðar adios

Fleiri myndir

Jæja, nú koma fleiri myndir frá ferðinni góðu.

Styttist óðum í Danmerkur ferðina mína til Huldu systir, allt kreisí í borgarpólitíkinni eins og venjulega, ýmsar vangaveltur um framtíðina í gangi, styttist í Ammmmmeríkuferðina, styttist í jólin, áramótin og þar fram eftir götunum. Mér finnst tíminn alveg hreint fljúga, orðið rúmt ár síðan ég byrjaði í bankanum… byrja í skólanum í næstu viku, er ekki alveg búin að ákveða hvaða áfanga ég ætla að taka og hverja ekki… Kemur allt í ljós

En jæja, er í borginni á leið á fund með Ungum Jafnaðarmönnum, ætla að henda inn þessum myndum og skunda svo niður á Hallveigarstíg og ræða starf vetrarins og annað slíkt.

ég og typpafjallið

Komnar á tind númer tvö í fjallgöngunni okkar í Skaftafelli

Skuggatangó eða tríó kannski bara

Seljalandsfoss alltaf fallegur

Mér finnst þessi svo ótrúlega fyndin, ég að hoppa yfir á og Donna tilbúin að grípa mig!

Ég og Donna túttur í Jarðböðunum

Ég og ása í búningnum fyrir Rafting

Pínu blautar eftir ferðina

Það var sem sagt snarbratt þarna niður, en fyndnar erum við;)

Eftir fjallgönguna ógurlegu, komnar í ásbyrgi, ég dama með handtösku og í pilsi, að fá aðstoð við að klöngrast í grýtinu, þetta leit út fyrir að vera mun hærra ofan frá!!!

Komnar á Typpasafnið, sem var ekkert svo merkilegt…

Að koma úr göngunni í Landamannalaugum, Ása ofur hiker fór eins og ekkret væri, Donna renndi sér á rassinum, ég hoppaði á öðrum fæti,

djók

Jæja, læt þetta duga í bili

Fór í óvissuferð með Bankanum á laugardaginn, það var mjööög gaman, ég vissi reyndar hver var verið að fara þar sem ég er í nefndinni;)

Set inn myndir frá því næst

Adios

Já ég er komin heim.

Eftir þriggja vikna, tæpilega, langt ferðalag.

Ég keyrði suður á þriðjudagsmorgni og hitti það vinnufélaga mína, þau biðu svona eftir mér:

Saman maukuðum við hið ýmsu súkkulaði tilraunir, mjög gaman. Og já, unnum stundum…

Ég hitti líka Tryggva, hann tók mig í guided túr um Útvarpshúsið, það fannst mér ekki leiðinlegt, ég æfði mig sem nýja Elín Hirst

Við sáum líka Jóker vélina sem var miiiiiiklu minni en ég bjóst við…

Hitti líka Eyrúnu og Mikael Aron, líka Wilsons, gleymdi að taka mynd af famelíunni saman…

Náði svo í Donnuling með Ásunni og við skelltum okkur hringveginn.  Sáum kerið umtalaða:

Og Gullfoss

Og Strokk, Geysir gaus ekki…

Fórum í Landmannalaugar, þangað hef ég aldri farið… Við klifum þetta fjall, þetta þarna með typpinu, þá hélt ég að ég myndi deyja…. Það er miklu stærra en það lítur út fyrir að vera, og erfitt að fara upp, og enn erfiðara að fara niður, við vorum farnar að halda að við þyrftum að setjast á rassinn og mjaka okkur niður… En einhverj þýskur ferðamaður, sem var með ofurbúnað, hann studdi okkur niður versta partinn…

Þegar við biðum eftir rútunni nefnilega til að fara uppeftir, þá fóru að flykkjast að allskonar túristar, með allan búnað, og allt í réttum pokum og á réttum stöðum. Við hins vegar… Við fórum svona:

Enda var ferðin í boði bónus… eða næstum því… Við fengum því slatta af augngotum, þegar við röltum í rútuna, klifjaðar af pokum, töskum, svefnpokum og að ógleymdri kælitöskunni…

Já það var sko fallegt þarna uppfrá

Stelpurnar vel hressar.

Við fórum líka á Þingvelli, þar var besta veðrið á árinu, 27 stiga hiti sól og ljúfa lífið, um kvöldið var líka fallegt veður og fallegt útsýni úr bústaðnum

Ég tók líka fuuuuullt af myndum, þegar við fórum í Skaftafell, þar fórum við í ægilega fjallgöngu sem endaði með því að ég var komin með 15 blöðrur og lausa nögl, gangan var nefnilega 17 km og 3 fjöll innifalin. Við fórum í siglingu á lóninu, borðuðum 1000 ára gamla ísjökla, fórum þræddum alla firðina á austurlandi, hittum hresst fólk á Seyðisfirði, skoðuðum Dettifoss og Ásbyrgi, Tippasafnið á Húsavík, Akureyri, fórum í Rafting, keyrðum á Sauðárkrók, Hofsós, Siglufjörð, Ólafsfjörð og Dalvík, Þræddum allt Snæfellsnesið og áttum unaðslegan dag í Reykjavík. Eftir að hafa keyrt Donnu á flugvöllinn keyrði ég norður og fór á Fiskidaginn mikla á Dalvík, hitti fullt af yndislegum ættingjum sem maður sér alltof sjaldan, vini og vanda menn, tók líka myndir af þeim. Hins vegar ákvað myndavélin mín ekki að hlaða þeim myndum inn í tölvuna… án þess að ég tæki eftir því og ég eyddi öllum myndunum af kortinu…

Ég set því fleiri myndir þegar ég er búin að fá afrit hjá stelpunum…

Friends gonna be friends

Stundum, er ég svo afskaplega fegin því að búa á Akureyri en ekki í Reykjavík. Gærdagurinn var einn af ein af þeim, ég var þreytt og mér var svo heitt og ég var ekki alveg viss um hvert ég var að fara, svo ég keyrði af stað, leitandi að götuheitum, búðum og fyrirtækjum, fór næstum því yfir á rauðu ljósi, beygði vitlaust, gleymdi að beygja, lenti þó ekki í Kópavogi eins og sumir, og þar fram eftir götunum. Rataði svo á réttan stað, IKEA og sá að ég hefði bara átt að sleppa öllum hinum stöðunum, því maður getur fengið allt í IKEA.

Siggi bró flutti í gærkvöldi, hann og Biggi, sambýlingur, ákváðu að fara og fylla flutningarbílinn og fara svo í bíó á Batman, þar sem þeir ætluðu í bíó kl 23 og ég átti að fara að vinna kl 8 í morgun, ákvað ég að sleppa því að fara með. Þeir voru búnir að flytja rúmið og rúmfötin, en ekki sjónvarpið og það. Ég er hins vegar búin að venja mig við það að horfa á Friends meðan ég sofna, bara svona eins og börnin fá pelann sinn, fæ ég Friends þáttinn minn. Ég ákvað því að skjótast og ná í dótið bara, mig vantaði reyndar líka Sjampóið sem var í gömlu íbúðinni þar sem mér var ekki farið að veita af sturtu… Ég tóka DVD spilarann úr sambandi og gekk frá því öllu og svona, svo var komið að því að taka sjónvarpið sjálft… Þetta er gamalt sjónvarp og stórt og mjög svo þungt. Ég ákvað því að vera skynsöm og koma með bílinn nær og keyrði alveg upp að útidyrunum, og reyndi. Sjónvarpið komst í bílinn í 3 tilraun, þegar ég var búin að gefast upp við að reyna að koma því í aftur sætið, komst það loksins inn um skottið þegar ég var búin að leggja bæði sætin niður. Þegar ég kom aftur á nýja pleizið, tók við það vandamál að koma sjónvarpinu upp úr skottinu, án þess að brjóta það… til að gera langa sögu stutta, þá tókst það loks, þó ég hefði oft verið við það að gefast upp og var farin að vona að það myndi einhver stór og stæðilegur karlmaður ganga fram hjá mér og bjóðast til þess að hjálpa mér. Þetta tók hins vegar svo á, að eftir að ég var búin að tengja dótið og fara í sturtuna, lognaðist ég ansi fljótt út af. Í dag er ég ekki frá því að ég sé með örlitla strengi í framhandleggjunum… Jásko til, það gæti reyndar líka verið eftir að hafa hrært í súkkulaði pottinum…

Það er enn súkkulaðipartý í vinnunni, mikið gaman og mikið grín, sem er vel.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.