Já það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram! Fyrir tveimur árum var ég að berjast við pöddur og eðlur í litla moldarkofanum mínum í Indlandi. Ný útskrifuð með þörf fyrir ævintýrum og upplifelsum.
Annars er fínt að frétta. Lífið gengur sinn vanagang í eintómri hamingju og gleði. Sem er vel. Um helgina verður farin síðasta ferð í Þverholtið til að ganga frá dóti og drasli þar, pakkað niður og hent, flokkað og skilað… Eftir það kem ég bara heim í holt til að kjafta og fá eitthvað að borða:) Nei djók.
Bíllinn minn er kominn á sölu, stendur á Toyota planinu, spenntur eftir nýjum eigendum. Dabbi hefur sko sannarlega staðið fyrir sínu. Er búin að vera að pæla í að selja hann síðan í haust… varla að ég tími því, en það er kannski ágætt líka. Svo ef einhverjum vantar bíl, þá er um að gera að fara og skoða, ég er alveg viðræðuhæf í samninga:)
Íbúðin mín er í leigjendabrasi, eina ferðina enn. Þetta virðist engan endi ætla að taka, á þessu rúma ári hef ég gert 4 samninga sem allir voru skráði í lengur en 9 mánuði. En svona er þetta víst.
Annars eignuðumst við ægilega fallegt borðstofuborð um daginn, borð sem að langamma og langafi á Brattavöllum áttu, borð sem að mamma lærði við og notaði. Ásgeir tók og pússaði það upp og bæsaði og lakkaði og úr varð þetta dýrindisfallega borð sem fer ægilega vel í stofunni.
Annars átti ég afmæli um daginn, varð árinu eldri, já það gerist víst líka. Í tilefni þess bauð ég í smá kaffi, voðalega notalegt og gaman að hitta vini og fjölskyldu:)
Annars held ég nú að það sé lítið að frétta í bili, læt þetta nægja:) Þar til næst:)
Gaman að þú skulir vera búin að blogga tvisvar á þessu ári og janúar ekki búin. dugleg stelpa.
Annars er voða hljóðlátt hér í Holtinu allavega á meðan við pabbi þinn erum bara tvö í kotinu, þannig að ykkur er alveg óhætt að líta við ef vel liggur á ykkur ……….. já og það er líka allt í lagi þó að þið séuð eitthvað döpur líka,annars hef ég aldrei séð ykkur öðruvísi en skælbrosandi og alsæl síðan þú fluttir til Ásgeirs þannig að ég held að það liggi bara alltaf vel á ykkur hjúunum.
sjáumst í íbúðinni þinni á morgun við tiltekt og fínerí, best að láta karlana sjá um smíðarnar :)