Í dag var nokkuð hress dagur í vinnunni, fyrsti dagurinn sem er svona nokkuð kreppulaus…
Ég var að reyna að ná athygli Auðar þegar hún tók þessa mynd af mér:
ótrúlega sæt ég veit…
Þessi mynd prýðir nú kaffistofu deildarinnar í Reykjavík og skrifað við svínkan. Enda er nefið einstaklega svínslegt þarna!
Ákveðið var að hafa keppni í hver gæti tekið best til á borðinu sínu. Þarna fann ég mér verðugt verkefni, enda á það til að safnast alls konar dót og drasl á borðið mitt…
Við reyndar bættum við smá dóti sko, það var ekki svona slæmt!
Já sko, allt að gerast hjá mér!
Svo tók ég til og svona var útkoman:
Sko mig!!
Að sjálfsögðu hreppti ég hnossið, þó svo að ýmsir hafi haldið fram að um svindl væri að ræða. Eva benti þó kurteisislega á að það væri hægt að þekkja borðið mitt á litla englinum, ef einhver sér hann í fyrri myndum…
Já það er stuð hjá okkur. Ég lét loksins verða að því að prófa að renna mér niður handriðið í bankanum í dag. Búið að mana mig upp í það í nokkra mánuði. Það var nú ekki eins skelfilegt og ég hélt.
Hver segir svo að bankastarfsmenn hafi ekkert að gera??



gott að vinnan sé farin að vera aðeins skemmtilegri aftur eftir allt þetta krepp!!
Múhaha, meig á mig. Tvisvar!
Gott líf í bankanum,
það er ekki einu sinni svona lítið að gera hjá mér þegar ég er í fríi :)
Gott í þér hljóðið samt og það er vel
hlakka til að sjá þig 34 dagar!!!
knús
Hahahahahahahahahahahahaha!
Ég sá þessa færslu fyrir nokkru en hló alltaf svo mikið að ég náði ekki að kommenta! Hahahahahaha!
Hef ég sagt þér hvað ég elska þig mikið skott!
haha! dásamlegar myndir! :)
gaman að sjá að það breytist ekkert í bankanum þrátt fyrir kreppuna! :D
knús á þig, sæta spæta!
já þu ert nú rosalega dugleg að blogga systir kær!
Ertu enn að taka til á skrifborðinu Valdís mín