Já sko. Þegar maður á að vera að læra, þá er maður oft mjög duglegur við að gera eitthvað annað. Til dæmis vera á facebook, skoða mbl.is, hreinsa út gamla pósta í pósthólfinu sínu, fara blogg hringi, lesa slúður og fleira og fleira.
Undanfarna daga er ég búin að vera að reyna læra mjög mikið. Þar sem ég var nánast ekkert búin að læra í 4 – 5 vikur, sá ég að það væri ekki seinna vænna en að rífa sig upp og drífa í þessu. Það hefur gengið misvel, allt aðkoma, en hins vegar er ég voðalega dugleg við hitt líka, þ.e.a.s allt aukadótið sko.
Ég velti því einmitt fyrir mér, þegar ég stekk á facebook, því ég sé að það er komin ný tilkynning, þá stendur kannski: Hulda Dröfn Jónsdóttir skrifaði athugasemd við mynd frá Sigurður Jónsson, fyrir 2. sek síðan.
Fyrst þegar þetta gerðist, þá fannst mér það eiginlega bara pínu fyndið, að ég hafi verið svona snögg. Núna uppá síðskastið, þá er þetta búið að gerast rosalega oft.
Fjölmiðlapásunni minni er lokið, þó svo ég skrolli yfirleitt yfir bíb fréttirnar.
Annars voru Hafnarfjarðarfrænkur mínar í heimsókn um helgina hér í holtinu. Gaman að sjá þær aftur. pínu notalegt að vakna við að þær skriðu uppí til mín á laugardagsmorguninn, þó mér finndist það heldur til snemmt svona rétt uppúr átta. Við kveiktum þó á sjónvarpinu og horfðum á barnatímann og ég spjallaði við Tryggva á msn. Yfirleitt einu tímarnir sem ég tala við hann, snemma á morgnanna eða mjög seint á kvöldin. En svona er þessi tímamismunur víst. Við ræddum að sjálfsögðu heimsmálin og komum með lausnir að öllum heimsins vandræðum. Ekki að spurja að því.
Í gærkvöldi fór ég til Fönnslunnar þar voru saman komin föngulegur hópur fólks, sem spjölluðu og hlógu, fórum svo saman á Hvanndalsbræður. Sem spiluðu unplugged á Græna Hattinum, það þarf varla að taka það fram að við skemmtum okkur mjög vel og sátum að sjálfsögðu á fremsta bekk.
Annars styttist óðum í jólin, sem þýðir að það styttist í Wii keppnina sem verður háð hér um jólin, en Hulda og Bobbý verða nýbúin að fá sér og ætla að koma með. Spurning hvort það verði ekkert trivial þessi jólin með fjölskyldunni, bara íþróttakeppnir í Wii, þurfum að tékka á hvort það sé curling í boði, svona fyrir gamla settið:)
Já við þyrftum að athuga með curling leik, var ekki búin að fatta það meðan Bobbý var úti, en hann verður kannski kominn fyrir jólin 2009:)
En ég skil vel hvað þú meinar með snöggum hreyfingum á facebook….þetta er skuggalegt:)
Ég sat einmitt allan daginn í gær fyrir framan tölvuna að undirbúa foreldrasamtöl sem ég verð með á morgun og út vikuna, og varði mestum tíma á facebook, skype, msn, mbl, youtube, og bloggum….er líka sjálf bæði búin að blogga á mína síðu, og lokaða síðu hjá nokkrum vinkonum. Þvílíkt dugleg sko:) En sit svo líka núna, og þarf að skrifa um seinasta barnið, og er bara alveg tóm…og farinn að kíkja á blogg aftur eins og þú sérð :)
stelpur mínar……….. farið þið bara að æfa ykkur ég er gömul íþróttafrík og ég geri allt sem ég get til að rúlla ykkur upp í íþróttakeppnum um jólin. ………. þarf kannski aðeins að fá að æfa mig lika svona rétt til að rifja upp gamla takta :)