Ég hef ákveðið að gera síðuna mína lausa við allt bíb, svo við tökum nú bara óla stef á þetta.
ég er búin að fá nóg af bíb umræðu, í vinnunni, allstaðar í fréttum og hvert sem ég kem. Enda er ég hætt að hlusta á fréttir, og skoða orðið nánast aldrei blöðin, fréttafíkillinn sjálfur. Mér er sagt allt það merkilegasta í vinnunni, það er nóg.
Annars er nú ýmislegt skemmtilegt búið að gerast undanfarið. Fór í afmælisboð á fimmtudaginn. Voða fínt kökuboð hjá honum Örlygi mínum, en hann varð 25 ára gamall stúfurinn. Þegar ég lýsti veislunni, þegar heim var komið, fyrir foreldrum mínum, fannst þeim þetta nú eitthvað frekar líkjast 5 ára afmælisveislu. Ég kom nefnilega heim, að springa úr stolti og gleði yfir að hafa unnið í pakkaleiknum, já það var sko pakkaleikur, var búin að gleyma hvað hann er skemmtilegur!:)
Um kvöldið fórum við Ragna mín, sem var í bænum, á tónleika með Friðrik Ómari, þar sem hann tók mikið af lögunum hans Villa Vill, ég sem hef verið forfallinn aðdáandi Villa í mörg ár, sat dolfallin og hlustaði, frábærir tónleikar, voða rómantískir, en við Ragna héldum bara í hendina á hvor annari.
Skelltum okkur svo á Karólínu, til að rifja upp gamla tíma, og spjölluðum langt fram á kvöld. Alltaf svo unaðslegt að hitta gamla og góða vini og spjalla.
Fanneyin mín er einmitt að koma heim á morgun. Við höfum ekki hist í rúmar 5 vikur núna. Fyrst fór hún í burtu, svo fór ég í burtu í rúmar 2 vikur, sama dag fór hún í burtu, líka í 2 vikur. Hún reyndar sótti um skilnað á meðan þessum fjarvistum stóð, en það er kannski möguleiki á að við getum unnið úr þessu, svona þegar við erum á sama staðnum, já fjarbúðin getur verið erfið!
Annars er gospelcurch í dag. Sem verður frábær. Skemmtileg lög, magnaður kór og flott sound:) á hernum kl 17. Allir velkomnir;)
Líst vel á þessa stefnubreytingu. Vantar alltaf eitthvað jákvætt og yndislegt að lesa á netinu, nóg er amk af bíb fréttum!!!
Ég get því miður ekki rætt neitt um skilnaðinn í fjarveru lögfræðings míns, en ég er opin fyrir nánast öllu mín kæra. Hlakka svakalega til að hitta þig annað kvöld svítípæj! Knúsur! :-*
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt, dúllan mín :*
Er annars sjálf búin að verða að bón þinni og bloggaði í gær.
Sjáumst eftir 43 daga :D
Knús