hjá mér í þessu bloggi!!! Eins og ég var komin á gott skrið með það!! En svona er það!
Annars hefur nú margt og mikið skeð síðan þá, ég fór suður, tók þátt í Lídolinu, gekk ekki eins vel og ég vonaði, en Palli var jafn sætur og venjulega og skemmtilegur. Ég fór í stærðfræðipróf, mamma og pabbi komu að utan, hitti þau í ca 20 min, fór svo beint út á völl, flaug suður, gerðist einstæð 3 barna móðir í Hafnarfirði, skemmti mér vel með frænkum mínum. Ýmislegt brallað þrátt fyrir ýmiskonar uppákomur:) Allt fór í bál og brand í þjóðfélaginu. Fólk að tapa sér, aðrir misstu vinnuna, ég var guðslifandi fengin að sleppa laus frá þessu, skellti mér til Minneappolis með Evu og Beggu.
Fyrsta skiptið sem ég fór til Bandaríkjanna, röðin í vegabréfaeftirlitinu var agalega löng, vélin tilbúin til brottfarar, við nokkuð stressaðar ekki einu sinni komnar að hliðinu. Afskaplega ókurteist fólk í vegabréfaeftirlitinu. Loksins komumst við í gegn og hlupum um borð. Flugfreyjurnar voru frekar leiðinlegar á leiðinni, við vorum skammaðar fyrir að hafa hringt bjöllunni og þær komu ekki með vatnið okkar… okkur leið eins og 5 ára. Maður hefur heyrt svo hræðilega þrúgandi sögur af vegabréfa eftirlitinu í Bandaríkjunum að það var ekki laust við það að maður væri smá stressaður, meðan maður beið í röðinni. Það reyndist hinn mesti óþarfi. Hressari gaur hef ég aldrei hitt í vegabréfaeftirlitinu, hann hló þegar við sögðumst vinna í banka á Íslandi, var hissa á að við hefðum mátt fara. Þegar hann spurði hvað við værum með mikinn pening með okkur, þá sögðumst við hafa tekið allan gjaldeyrir sem til var í landinu. Honum fannst við skemmtilegar og sagði okkur að skemmta okkur vel og koma sem fyrst aftur.
Við versluðum helling, gerðum margt skemmtilegt, Mall of America er riiisastórt, 540 verslanir, held við höfum farið inn í 15 í mesta lagi. Rosalega gaman. Fórum í Tivolí, þegar við vorum búnar að versla slatta mikið. Fór í skemmtilegasta Rússíbana sem ég hef farið í á ævi minni. Allt svo stórt í Ammmeríkunni. Ég sá hvers vegna Bandaríkjamenn eru svona stórir. Ég fór á Taco Bell í hádeginu einn daginn, pantaði mér svona máltíð, Burrito sem var bara venjuleg stærð, en drykkurinn sem fylgdi með var 0,75 L af gosi. Ekki nema.
Annars er lítið að frétta, nú á ég fullt af nýjum fötum, og er afskaplega hamingjusöm með það. Styttist í jólin, sem þýðir að þá fer fólk að koma aftur á norðurlandið, sem er vel.
Kannski maður fari bara að skrifa á jólakortin… Verði tímallega í þessu í ár!
Oh… Jólin… Hlakka til að koma norður :) Þú verður að halda áfram að vera dugleg að blogga :)
gaman að sjá blogg frá þér sæta mín! Get ekki beðið eftir að hitta þig um jólin:)
Bráðum koma blessuð jólin…………………….
öss, mátt ekki missa niður blogg-andann! :)
gaman að heyra að þið skemmtuð ykkur vel í ameríkunni!
knús
ég er búin að gera mín jólakort, finnst það ekkert of snemmt :D
Hlakka til að sjá þig :*
Getum við ekki föndrað saman jólakort og drukkið smá meððí?