Já það er sko langt síðan síðasta blogg var… Enda margt gerst síðan þá…
Ég fór til Danmerkur þar sem ég eyddi unaðslegri viku hjá Huldunni minni og Bobbý, ég lá í leti, horfði á friends, við spiluðum, hlógum og eyddum tímanum saman. Rebekka, Imma, Björn Tómas og Óskar bættust í hópinn og við fórum á tónleikana unaðslegu, dásamlegu og yndislegu með hinum frábæra Kirk Franklin. Já mér fundust þeir sko góðir!
Maggan mín úr Bókval, lést eftir hetjulega baráttu við krabbamein, þar fór kjarnakona sem ég dáði mikið og leit upp til.
Leigjendurnir mínir ákváðu að minnka við sig og flytja út úr íbúðinni, enda samdráttur í gangi. Af stað fór leit að nýjum leigjendum, sem gekk svo loksins eftir í gærkvöldi. Þau flytja inn 1. okt og verða fram á vorið. Þá stefni ég að að flytja inn í hana, enda verður eldhúsinnréttingin vonandi hætt að hækka svo ég geti farið og verslað hana!:)
Mamma og pabbi fóru til útlanda, eru á Tenerife, svo ég nýtti tækifærið og bauð fyrst Beggu og Evu í mat á föstudagskvöldið, það var frábært, rifjuðum upp gömul og góð atvik, frá því við vorum litlar, hvernig við kynntust, hlógum og spjölluðum og enduðum svo í nostalgíu og fórum á rúntinn, þar sem Eva var enn með það á hreinu hverjir væru nýjir í bænum og hverjir ekki; því það er bara nýtt fólk í bænum sem gefur stefnuljós á rútninum!!! frábært kvöld með þeim. Á laugardeginum bauð ég svo Fanneyjunni minni og Möggunni í mat, þær fengu samt ekki upphitaða afganga… Þar sátum við og slúðruðum, borðuðum, hlógu, allt þetta sem að vinkonur gera. Unaðsleg helgi!
Ásta litla lagðist í pesti í gær, var hálf dauð í sófanum í gær þegar ég kom heim úr vinnunni, með hita og kvef og hreyfði sig varla, þá kom flakkarinn að góðum notum. Ég var svo drifin í kvöldmat til Siffu frænku, 3 skiptið á þessari viku sem þau gömlu eru búin að vera burtu sem að hún býður okkur systrum í mat. Enda ekki möguleiki að við getum séð um okkur sjálfar. Börnin!:) En það var nú gott að fá svona alvöru lambalærisneiðar í ofni með sultu og brúnuðum kartöflum og ís í eftirrétt… aahhh aðald ha?
Á morgun er ferðin sett suður, á föstudaginn tek ég þátt í Lídolvision, sem er söngkeppni/idol/eurovision keppni höfuðstöðva landsbankans. Ég ætla að keppa fyrir hönd míns sviðs, verð með 16 dansara og 4 bakraddir, þetta verður rosalegt maður;) Saumaskapur er í gangi, bleikt, glansandi og ég minnti sjálfa mig á diskókúluna í loftinum í sjallanum þegar ég var komin í þetta…. En að sjálfsögðu er ekkert nema sigur sem dugar!! Enda er þetta lagið:
Jei! Blogg! En hvað þú hefur glatt mig sem fyrr.
Upphitaðir afgangar minn rass.. eðaldinner að vanda elskan, þú kannt’etta!
Vá hvað þú verður að láta taka vídjó og myndir og slides og hvað þetta heitir allt saman, gotta see the pink disco diva in action! ;) Er viss um að þú sigrir þetta, ég býð í döðlutertu hvernig sem fer!
Döðuterta.. mmmm….
Aðhald.. mmmm…
Lamalærissneiðar með sultu.. mmm….
Valdís .. mmm..