Já, þetta er nú meiri endæmis vitleysan þarna í borginni. Eins og allir vita…
Nýr meirihluti tók við í dag undir yfirskriftinni Höldum áfram, vantar bara að bæta ruglinu við þarna fyrir aftan.
Ég hefði viljað sjá Tjarnarkvartettinn aftur, enda vann hann vel og gerði margt gott á þessum stutta tíma sem hann var.
En það er bara og bíða og sjá, kosningarnar eftir tæp tvö ár, það verður ansi spennandi að sjá hvernig fer þá…
Annars er ég að byrja í skólanum. Jájájá, fór og keypti skóladót og skólabækur. Mikið sem ég fegin að Ástan mín vinni enn í Pennanum, ekki það að ég hefði sjálfsagt fengið að misnota afsláttinn hjá einhverjum, en ég varð allavega mjög glöð.
Ég fékk í dag svona skóladagbók, það hef ég ekki fengið lengi lengi, mér fannst það mjög skemmtilegt.
Ég er búin núna að eyða síðasta hálftímanum eða svo í vinnunni að skoða hana og aukadótið í henni, milli þess sem ég vinn að sjálfsögðu… En þar er svona ýmislegt, manni til dundurs, hvernig stjörnumerkin eiga saman og margt margt fleira. Ég þarf helst að fá mér svona glimmer penna eða eitthvað til þess að skrifa í hana:-)
Annars er lítið að frétta, styttist óðum í ferðina út til Huldu, sem þýðir að það styttist óðum í Kirk Franklin, jeminn hvað ég get ekki beðið:)
Ég verð nú eiginlega bara að taka undir það sem Hulda segir við síðustu færslu, mynd af pilspeysudæminu væri vel þegin :)
Vá hvað ég skil þig samt með skóladagbókina! Ekkert smá gaman að grúska í henni, merkja inn afmælisdaga (eins og t.d. 26. sept) og teikna typpi. Æði.