Feeds:
Færslur
Ummæli

Já það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur áfram! Fyrir tveimur árum var ég að berjast við pöddur og eðlur í litla moldarkofanum mínum í Indlandi. Ný útskrifuð með þörf fyrir ævintýrum og upplifelsum.

Annars er fínt að frétta. Lífið gengur sinn vanagang í eintómri hamingju og gleði. Sem er vel. Um helgina verður farin síðasta ferð í Þverholtið til að ganga frá dóti og drasli þar, pakkað niður og hent, flokkað og skilað… Eftir það kem ég bara heim í holt til að kjafta og fá eitthvað að borða:) Nei djók.

Bíllinn minn er kominn á sölu, stendur á Toyota planinu, spenntur eftir nýjum eigendum. Dabbi hefur sko sannarlega staðið fyrir sínu. Er búin að vera að pæla í að selja hann síðan í haust… varla að ég tími því, en það er kannski ágætt líka. Svo ef einhverjum vantar bíl, þá er um að gera að fara og skoða, ég er alveg viðræðuhæf í samninga:)

Íbúðin mín er í leigjendabrasi, eina ferðina enn. Þetta virðist engan endi ætla að taka, á þessu rúma ári hef ég gert 4 samninga sem allir voru skráði í lengur en 9 mánuði. En svona er þetta víst.

Annars eignuðumst við ægilega fallegt borðstofuborð um daginn, borð sem að langamma og langafi á Brattavöllum áttu, borð sem að mamma lærði við og notaði. Ásgeir tók og pússaði það upp og bæsaði og lakkaði og úr varð þetta dýrindisfallega borð sem fer ægilega vel í stofunni.

Annars átti ég afmæli um daginn, varð árinu eldri, já það gerist víst líka. Í tilefni þess bauð ég í smá kaffi, voðalega notalegt og gaman að hitta vini og fjölskyldu:)

Annars held ég nú að það sé lítið að frétta í bili, læt þetta nægja:) Þar til næst:)

Jæja jæja jæja, hræðilega langt síðan ég hef bloggað síðast. Mikið og margt búið að gerast síðan þá, á ekki lengri tíma. Ég er flutt frá mömmu og pabba, ekki samt inn í íbúðina mína, ónei, fann mér ungan myndarlegan iðnaðarmann sem átti líka þessu fínu íbúð, sem hafði nóg pláss undir mig allt allt mitt hafurtask! Afraksturinn af því er hins vegar sá að nú eigum við 3 brauðristar, 3 hraðsuðukatla, 2 George Forman grill, 59 glös og margt fleira. En bara gaman af því og virkilega ljúft líf:)

En ég lofaði einhverjum að koma með svona smá annál fyrir árið 2008. Það varð nú ekki eins merkilegt eins og árið á undan, en þó sjálfsagt eitthvað sem hægt er að minnast á.

Janúar:

Átti afmæli, alltaf gaman, vann í bankanum, ákvað að taka mér frí frá skólanum, var í Gospel, fór í stjórnina þar, fékk að stjórnast. Allt við það sama og lífið ljúft.

Febrúar:

Starfið hjá UJA var alveg á fullu, vorum að undirbúa stóra ráðstefnu sem við héldum svo í mars. svei mér þá ef ég hef ekki farið eins ferð til Reykjavíkur!

Mars:

Bleika orkan haldin, á annað hundrað mann mættu, virkilega gaman, ég var brjálæðislega stolt. Árshátíð bankans, engu til sparað, brjálæðislega gaman, skemmtilegasta kvöld í langan tíma. Reykjavíkur ferð og Svíþjóðarferð, þar sem ég fór til Margrétarinnar minnar og Gíslans, fórum saman til Finnlands og heimsóttum jólasveinin. Ég sendi fyrsta jólakortið á árinu. Eyddi föstudeginum langa á hótelherbergi og borðaði rúnstykki með skinku og osti í kvöldmat.

Apríl:

Ég ákvað að fara í átak, og fara að borða hollara, það gekk upp og ofan, eitthvað saxaðist þó af mér og hefur ekki enn komið til baka. vinna sofa borða.
Mamma og pabbi átti brúðkaupsafmæli, við systkinin komum þeim á óvart með hjálp góðra ættingja og vina, frábær dagur sem klárlega mun seint gleymast:)

Maí:

áfram í aðhaldinu, lífið hressandi, vorið nálgaðist, tónleikar Gospelkórsins, hörkustuð. Vorhátíð bankans haldin, þar skemmti ég mér mjög vel, hló mikið, eins og mér einni er lagið. Var þá búin að vera í 10 vikna áfengisbanni, sem var víst rofið þetta kvöld. Engu að síður afar skemmtilegt kvöld, sem verður lengi í minnum haft. Strax morgunin eftir, lögðum við Fanney Dóra af stað austur á land, þar sem við höfðum pantað okkur sumarbústað til að vera í.

Júní:

Eyddum 5 yndislegum dögum í sumarbústaðnum, fórum á Kárahnjúka, Fljótsdalinn, yndislega Mjóafjörð og margt annað, keyrðum svo heim með því að þræða firðina og Melrakkasléttuna. Unaðsleg ferð.
Restinni af júní mánuði, eyddi ég í vinnu og afslöppun og sólböð, þó svo að tanið léti bíða eftir sér.

Júlí:

Sumarið var ljúft og hélt áfram að vera það. Mamma, pabbi, Siffa og ég, fórum í smá ferðalag, gengum inn Kolugjlúfur, fórum á Blönduós, Hvammstanga og fleiri dali og firði sem ég man ekki nöfnin á, tjölduðum, grilluðum, borðuðum, og hlógum. Undir lok júlímánaðar, kom Donna sem var með mér á Indlandi til Íslands í heimsókn og fórum við Ása Valdís með hana hringveginn. Fórum í Landmannalaugar, þar sem að við mættum í rútuna, með allan okkar farangur í Bónuspokum, á meðan hinir túristarnir voru mun betur búnir… Við skemmtum okkur þó afskaplega vel. Gengum upp á fjöll þar og skoðuðum okkur um, misskildum leiðbeiningar og fórum vitlausar leiðir í fjallgöngu en skemmtum okkur engu að síður vel.

Ágúst:

Héldum hringveginum áfram, tókum alla firðina á Austurlandinu á laugardeginum, alveg upp að Seyðisfirði þar sem við gistum og kíktum á einhvern lítinn bar, þar sem að maður frá Kóreu var og sagði okkur mikið af sögum og söng fyrir okkur, þó svo að við skyldum enganveginn hvort annað. Fórum áleiðis til Akureyrar, Dettifoss og Reðursafnið á Akureyri skoðað, og heim í Þverholtið þar sem beið okkur unaðslegur matur að hætti mömmslunnar. Áfram hélt ferðalagið, farið í Rafting, Snæfellsnesið, Siglufjörð og Hofsós áður en haldið var í borgina þar sem við borðum indverskan mat, bara svona uppá gamla tíma. Eftir ferðalagið, skutlaðuðum við Donnu út á flugvöll og ég hélt áleiðis norður, var komin á Dalvík uppúr hádegi þar sem að fiskidagurinn var í fullu fjöri.
Þegar líða fór á mánuðinn fór ég að undirbúa Danmerkurför, en í lok mánaðar fór ég til Huldu og Bobbý og dvaldi þar í góðu yfirlæti í viku.

September:

Unaðslegur tími sem ég átti hjá Huldu og Bobbý, akkúrat fríið sem ég þurfti, vaknaði, horfði á Friends, borðaði, labbaði í búðir, naut þess að vera með þeim og þar fram eftir götunum. Þegar líða fór á vikuna bættust fleiri í hópinn, Rebban mín, Imma, óskar og Björn Tómas, því saman fórum við öll á tónleika með átrúnaðargoðinu mínu, Kirk Franklin, þar sem við systur gengum í barndóm og fleygðum okkur á kappan þegar hann gekk fram hjá okkur, stórir og stæltir lífverðir voru ekki lengi að fleygja okkur í burtu. en það var í lagi, við snertumm hann.
Byrjaði í skólanum, Viðskiptafræði við Háskólann hér á Akureyri í fjarnámi.

Október:

Byrjaði mánuðinn á því að gerast einstæð þriggja barna móðir í Hafnarfirðinum, var þar í bankahruninu, sem var fínt, því það var ágætt að hugsa um eitthvað allt annað þegar maður var bugaður eftir vinnuna, koma “heim” og fá þrjú risa knús og þurfa ekki að hafa áhyggjur af öðru en að elda matinn og búa til trölladeig, og sinna heimanámi, sem var ágætt mótvægi við geðveikina sem gekk yfir. Eftir að staðgenglamóðurhlutverkinu lauk, dreif ég mig til USA með Evunni og Beggu minni. Vegabréfaeftirlitið hló af íslenskubankastarfsmönnunum og spurði hvort okkur væri virkilega hleypt úr landi og hvort það hefið verið til einhver gjaldeyrir. Þar var verlsað og verslað og verslað og verslað. Ljúft líf.
Kreppan herjaði enn að þegar við komum til baka. Og þá var nú gott að geta glatt sjálfan sig með því að fara í ný og falleg föt:)
Þarna kynntist ég líka Ásgeiri mínum, einmitt þegar ég var í nýju fötunum mínum! Segið svo ekki að utanlandsferðir borgi sig;)

Nóvember:

Leið óvenju hratt og vel, allt lék í lyndi, ég ákvað að hætta við að hætta í skólanum og fór að læra eins og ég ætti lífið að leysa… þó að árangurinn hafi ekki alveg orðið eftir því… EEEEEenn það gengur bara betur næst:)

Desember:
Prófatíð, jólatíð, jólafrí. Kláraði jólainnkaupin nokkuð tímalega, þó svo að jólakortin hafi ekki verið eins tímalega á ferðinni:) en komust þó í póst fyrir jól. það er fyrir mestu:)
Tók prófin í skólanum, gekk svona ágætlega, náði 1 fagi en féll í 2, sem ég var svekkt yfir. En gengur bara betur næst.
Hulda og Bobbý komu heim um jólin, líkt og Siggi og Unnur og nutum við þess að vera saman fjölskyldan, þar sem keppt var í ýmsum Wii greinum. Enginn slasaðist þó alvarlega, þó einhverjir hafi fundið til strengja. Ég fékk jólafrí í fyrsta skipti frá því ég byrjaði í Pennanum ung að árum. Var í jólafríi frá því kl 16 á Þorláksmessu til 29 desember, og fílaði það í tætlur:)
Kvaddi svo gamla árið með því að sofna snemma og sofa lengi.

Held þetta sé svona sirkabátit, árið sem leið. Gott ár og það nýja verður sjálfsagt enn betra:)

Hress dagur í vinnunni

Í dag var nokkuð hress dagur í vinnunni, fyrsti dagurinn sem er svona nokkuð kreppulaus…

Ég var að reyna að ná athygli Auðar þegar hún tók þessa mynd af mér:

hver-er1

ótrúlega sæt ég veit…

Þessi mynd prýðir nú kaffistofu deildarinnar í Reykjavík og skrifað við svínkan. Enda er nefið einstaklega svínslegt þarna!

Ákveðið var að hafa keppni í hver gæti tekið best til á borðinu sínu. Þarna fann ég mér verðugt verkefni, enda á það til að safnast alls konar dót og drasl á borðið mitt…

bord-fyrir2

Við reyndar bættum við smá dóti sko, það var ekki svona slæmt!

bord-fyrir

Já sko, allt að gerast hjá mér!

Svo tók ég til og svona var útkoman:bord-eftir

Sko mig!!

Að sjálfsögðu hreppti ég hnossið, þó svo að ýmsir hafi haldið fram að um svindl væri að ræða. Eva benti þó kurteisislega á að það væri hægt að þekkja borðið mitt á litla englinum, ef einhver sér hann í fyrri myndum…

Já það er stuð hjá okkur. Ég lét loksins verða að því að prófa að renna mér niður handriðið í bankanum í dag. Búið að mana mig upp í það í nokkra mánuði. Það var nú ekki eins skelfilegt og ég hélt.

Hver segir svo að bankastarfsmenn hafi ekkert að gera??

Já sko. Þegar maður á að vera að læra, þá er maður oft mjög duglegur við að gera eitthvað annað. Til dæmis vera á facebook, skoða mbl.is, hreinsa út gamla pósta í pósthólfinu sínu, fara blogg hringi, lesa slúður og fleira og fleira.

Undanfarna daga er ég búin að vera að reyna læra mjög mikið. Þar sem ég var nánast ekkert búin að læra í 4 – 5 vikur, sá ég að það væri ekki seinna vænna en að rífa sig upp og drífa í þessu. Það hefur gengið misvel, allt aðkoma, en hins vegar er ég voðalega dugleg við hitt líka, þ.e.a.s allt aukadótið sko.

Ég velti því einmitt fyrir mér, þegar ég stekk á facebook, því ég sé að það er komin ný tilkynning, þá stendur kannski: Hulda Dröfn Jónsdóttir skrifaði athugasemd við mynd frá Sigurður Jónsson, fyrir 2. sek síðan.

Fyrst þegar þetta gerðist, þá fannst mér það eiginlega bara pínu fyndið, að ég hafi verið svona snögg. Núna uppá síðskastið, þá er þetta búið að gerast rosalega oft.

Fjölmiðlapásunni minni er lokið, þó svo ég skrolli yfirleitt yfir bíb fréttirnar.

Annars voru Hafnarfjarðarfrænkur mínar í heimsókn um helgina hér í holtinu. Gaman að sjá þær aftur. pínu notalegt að vakna við að þær skriðu uppí til mín á laugardagsmorguninn, þó mér finndist það heldur til snemmt svona rétt uppúr átta. Við kveiktum þó á sjónvarpinu og horfðum á barnatímann og ég spjallaði við Tryggva á msn. Yfirleitt einu tímarnir sem ég tala við hann, snemma á morgnanna eða mjög seint á kvöldin. En svona er þessi tímamismunur víst. Við ræddum að sjálfsögðu heimsmálin og komum með lausnir að öllum heimsins vandræðum. Ekki að spurja að því.

Í gærkvöldi fór ég til Fönnslunnar þar voru saman komin föngulegur hópur fólks, sem spjölluðu og hlógu, fórum svo saman á Hvanndalsbræður. Sem spiluðu unplugged á Græna Hattinum, það þarf varla að taka það fram að við skemmtum okkur mjög vel og sátum að sjálfsögðu á fremsta bekk.

Annars styttist óðum í jólin, sem þýðir að það styttist í Wii keppnina sem verður háð hér um jólin, en Hulda og Bobbý verða nýbúin að fá sér og ætla að koma með. Spurning hvort það verði ekkert trivial þessi jólin með fjölskyldunni, bara íþróttakeppnir í Wii, þurfum að tékka á hvort það sé curling í boði, svona fyrir gamla settið:)

ný ákvörðun

Ég hef ákveðið að gera síðuna mína lausa við allt bíb, svo við tökum nú bara óla stef á þetta.

ég er búin að fá nóg af bíb umræðu, í vinnunni, allstaðar í fréttum og hvert sem ég kem. Enda er ég hætt að hlusta á fréttir, og skoða orðið nánast aldrei blöðin, fréttafíkillinn sjálfur. Mér er sagt allt það merkilegasta í vinnunni, það er nóg.

Annars er nú ýmislegt skemmtilegt búið að gerast undanfarið. Fór í afmælisboð á fimmtudaginn. Voða fínt kökuboð hjá honum Örlygi mínum, en hann varð 25 ára gamall stúfurinn. Þegar ég lýsti veislunni, þegar heim var komið, fyrir foreldrum mínum, fannst þeim þetta nú eitthvað frekar líkjast 5 ára afmælisveislu. Ég kom nefnilega heim, að springa úr stolti og gleði yfir að hafa unnið í pakkaleiknum, já það var sko pakkaleikur, var búin að gleyma hvað hann er skemmtilegur!:)

Um kvöldið fórum við Ragna mín, sem var í bænum, á tónleika með Friðrik Ómari, þar sem hann tók mikið af lögunum hans Villa Vill, ég sem hef verið forfallinn aðdáandi Villa í mörg ár, sat dolfallin og hlustaði, frábærir tónleikar, voða rómantískir, en við Ragna héldum bara í hendina á hvor annari.
Skelltum okkur svo á Karólínu, til að rifja upp gamla tíma, og spjölluðum langt fram á kvöld. Alltaf svo unaðslegt að hitta gamla og góða vini og spjalla.

Fanneyin mín er einmitt að koma heim á morgun. Við höfum ekki hist í rúmar 5 vikur núna. Fyrst fór hún í burtu, svo fór ég í burtu í rúmar 2 vikur, sama dag fór hún í burtu, líka í 2 vikur. Hún reyndar sótti um skilnað á meðan þessum fjarvistum stóð, en það er kannski möguleiki á að við getum unnið úr þessu, svona þegar við erum á sama staðnum, já fjarbúðin getur verið erfið!

Annars er gospelcurch í dag. Sem verður frábær. Skemmtileg lög, magnaður kór og flott sound:) á hernum kl 17. Allir velkomnir;)

engin frammistaða…

hjá mér í þessu bloggi!!! Eins og ég var komin á gott skrið með það!! En svona er það!

Annars hefur nú margt og mikið skeð síðan þá, ég fór suður, tók þátt í Lídolinu, gekk ekki eins vel og ég vonaði, en Palli var jafn sætur og venjulega og skemmtilegur. Ég fór í stærðfræðipróf, mamma og pabbi komu að utan, hitti þau í ca 20 min, fór svo beint út á völl, flaug suður, gerðist einstæð 3 barna móðir í Hafnarfirði, skemmti mér vel með frænkum mínum. Ýmislegt brallað þrátt fyrir ýmiskonar uppákomur:) Allt fór í bál og brand í þjóðfélaginu. Fólk að tapa sér, aðrir misstu vinnuna, ég var guðslifandi fengin að sleppa laus frá þessu, skellti mér til Minneappolis með Evu og Beggu.

Fyrsta skiptið sem ég fór til Bandaríkjanna, röðin í vegabréfaeftirlitinu var agalega löng, vélin tilbúin til brottfarar, við nokkuð stressaðar ekki einu sinni komnar að hliðinu. Afskaplega ókurteist fólk í vegabréfaeftirlitinu. Loksins komumst við í gegn og hlupum um borð. Flugfreyjurnar voru frekar leiðinlegar á leiðinni, við vorum skammaðar fyrir að hafa hringt bjöllunni og þær komu ekki með vatnið okkar… okkur leið eins og 5 ára. Maður hefur heyrt svo hræðilega þrúgandi sögur af vegabréfa eftirlitinu í Bandaríkjunum að það var ekki laust við það að maður væri smá stressaður, meðan maður beið í röðinni. Það reyndist hinn mesti óþarfi. Hressari gaur hef ég aldrei hitt í vegabréfaeftirlitinu, hann hló þegar við sögðumst vinna í banka á Íslandi, var hissa á að við hefðum mátt fara. Þegar hann spurði hvað við værum með mikinn pening með okkur, þá sögðumst við hafa tekið allan gjaldeyrir sem til var í landinu. Honum fannst við skemmtilegar og sagði okkur að skemmta okkur vel og koma sem fyrst aftur.

Við versluðum helling, gerðum margt skemmtilegt, Mall of America er riiisastórt, 540 verslanir, held við höfum farið inn í 15 í mesta lagi. Rosalega gaman. Fórum í Tivolí, þegar við vorum búnar að versla slatta mikið. Fór í skemmtilegasta Rússíbana sem ég hef farið í á ævi minni. Allt svo stórt í Ammmeríkunni.  Ég sá hvers vegna Bandaríkjamenn eru svona stórir. Ég fór á Taco Bell í hádeginu einn daginn, pantaði mér svona máltíð, Burrito sem var bara venjuleg stærð, en drykkurinn sem fylgdi með var 0,75 L af gosi. Ekki nema.

Annars er lítið að frétta, nú á ég fullt af nýjum fötum, og er afskaplega hamingjusöm með það. Styttist í jólin, sem þýðir að þá fer fólk að koma aftur á norðurlandið, sem er vel.

Kannski maður fari bara að skrifa á jólakortin… Verði tímallega í þessu í ár!

Blogg?

Já það er sko langt síðan síðasta blogg var… Enda margt gerst síðan þá…

Ég fór til Danmerkur þar sem ég eyddi unaðslegri viku hjá Huldunni minni og Bobbý, ég lá í leti, horfði á friends, við spiluðum, hlógum og eyddum tímanum saman. Rebekka, Imma, Björn Tómas og Óskar bættust í hópinn og við fórum á tónleikana unaðslegu, dásamlegu og yndislegu með hinum frábæra Kirk Franklin. Já mér fundust þeir sko góðir!

Maggan mín úr Bókval, lést eftir hetjulega baráttu við krabbamein, þar fór kjarnakona sem ég dáði mikið og leit upp til.

Leigjendurnir mínir ákváðu að minnka við sig og flytja út úr íbúðinni, enda samdráttur í gangi. Af stað fór leit að nýjum leigjendum, sem gekk svo loksins eftir í gærkvöldi. Þau flytja inn 1. okt og verða fram á vorið. Þá stefni ég að að flytja inn í hana, enda verður eldhúsinnréttingin vonandi hætt að hækka svo ég geti farið og verslað hana!:)

Mamma og pabbi fóru til útlanda, eru á Tenerife, svo ég nýtti tækifærið og bauð fyrst Beggu og Evu í mat á föstudagskvöldið, það var frábært, rifjuðum upp gömul og góð atvik, frá því við vorum litlar, hvernig við kynntust, hlógum og spjölluðum og enduðum svo í nostalgíu og fórum á rúntinn, þar sem Eva var enn með það á hreinu hverjir væru nýjir í bænum og hverjir ekki; því það er bara nýtt fólk í bænum sem gefur stefnuljós á rútninum!!! frábært kvöld með þeim.  Á laugardeginum bauð ég svo Fanneyjunni minni og Möggunni í mat, þær fengu samt ekki upphitaða afganga… Þar sátum við og slúðruðum, borðuðum, hlógu, allt þetta sem að vinkonur gera. Unaðsleg helgi!

Ásta litla lagðist í pesti í gær, var hálf dauð í sófanum í gær þegar ég kom heim úr vinnunni, með hita og kvef og hreyfði sig varla, þá kom flakkarinn að góðum notum. Ég var svo drifin í kvöldmat til Siffu frænku, 3 skiptið á þessari viku sem þau gömlu eru búin að vera burtu sem að hún býður okkur systrum í mat. Enda ekki möguleiki að við getum séð um okkur sjálfar. Börnin!:) En það var nú gott að fá svona alvöru lambalærisneiðar í ofni með sultu og brúnuðum kartöflum og ís í eftirrétt… aahhh aðald ha?

Á morgun er ferðin sett suður, á föstudaginn tek ég þátt í Lídolvision, sem er söngkeppni/idol/eurovision keppni höfuðstöðva landsbankans. Ég ætla að keppa fyrir hönd míns sviðs, verð með 16 dansara og 4 bakraddir, þetta verður rosalegt maður;) Saumaskapur er í gangi, bleikt, glansandi og ég minnti sjálfa mig á diskókúluna í loftinum í sjallanum þegar ég var komin í þetta…. En að sjálfsögðu er ekkert nema sigur sem dugar!! Enda er þetta lagið:

Bara láta ykkur vita

Að ég SNERTI KIRK FRANKLIN!:)

Annars er Danmörk fín:)

Bissý helgi að baki

Já það er sko Busy helgi að baki, skemmtileg þó!!

Eftir vinnu á föstudaginn skelltum við Eva okkur á Glerártorg, versluðum afmælisgjafir og sitthvað fleira. Hún bauð mér svo í mat, sem var mjööög gott, enda kerlan stórgóður kokkur! Eftir að við Jón vorum búin að stríplast um íbúðina, og við öll búin að borða, þá skelltum við Eva og Begga okkur á Mamma Mia, sing Along sýninguna, þar voru forsöngvararnir ekki alveg að gera sig, en sýningin skemmtileg engu að síður.
45 ára afmælisveisla Þorláks Axels var svo næst, en hún var haldin í nýja stórfína húsinu í Naustahverfinu, sem var mjög flott, þar var gætt sér á góðum veitingum og spjallað.

Laugardagurinn rann upp bjartur og fagur, ég dreif mig uppá Súlur, já sko mig. Hópferð með bankanum, við vorum 14 sem lögðum af stað, 2 skokkuðu og voru komin niður aftur áður en við komum upp, 2 snéru við vegna tímaskorts, en restin fór upp, stolt og glöð og skrifaði nafnið sitt í Gestabókina. 1230 metrar víst fjallið. Á leiðinni niður mætti ég svo múttu og pápa sem fóru upp líka. Dugnaðurinn í fjölskyldunni!

Eftir fjallgönguna var brunað heim, skellt sér í sturtu, nánast ekkert teygt, í föt og í afmæli en hún Sunna Mekkín átti afmæli, þaðan var svo farið til Evu og Jóns, og við Eva löbbuðum yfir til Kollu, en þar hittumst við Síma og Þjónustuvers skvísur og elduðum saman. Við Eva stungum svo af og fórum til Emblu, en hún var með kveðjupartý, en skutlan er að fara að flytja til Svíþjóðar, hvorki meira né minna. Ég var hins vegar svo gjörsamlega búin, andlega og líkamlega að ég var komin heim um ellefu leytið!

Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur og silfurverðlaunin tekin í húsið. Þjóðarstoltið fór með mig og ég tárin hrundu niður kinnarnar meðan þeir tóku við verðlaununum. Sko strákana! Restin af deginum fór svo bara í dúllerí og svona, skoðaði eldhúsinnréttingar, kíkti til Emblu, við horfðum á dr. Phil gefa yfirgefnum konum ráð, mikið rosalega sem lífið hans hlýtur að vera fullkomið… Skellti mér svo til Siffu frænku til að skila henni göngustöfunum, þar úðaði ég í mig bláberjum og rjóma og sykri… byrja í aðhaldi á morgun… Við Siffa fórum á Glerártorg í R&L búðina, ég varð ástfangin af sófasetti. Borðaði svo unaðslegan mat með fjölskyldunni í gærkvöldi, keypti svo “ódýrt” bensín, bara 154 kr… Horfði á Law and Order og sofnaði svo svefni hinna réttlátu…

Sko mig, þetta er gjörsamlega tilgangslaust blogg… En ég meina, þau eru ágæt annað slagið:)

Enda á myndum frá Súlunni:

Komin á toppinn!

Komin á toppinn… Jóna Maja, Steina, Kata, Erla, Ásta og Ásgeir

Voða ánægð með að vera komin upp!

Kata og Jóna á leiðinni

Mosi á leiðinni, flottur liturinn

Komnar í matinn til Kollu um kvöldið

Hann var sko ekki slæmur Silungurinn sem Heibba veiddi!!

Já, þetta er nú meiri endæmis vitleysan þarna í borginni. Eins og allir vita…

Nýr meirihluti tók við í dag undir yfirskriftinni Höldum áfram, vantar bara að bæta ruglinu við þarna fyrir aftan.

Ég hefði viljað sjá Tjarnarkvartettinn aftur, enda vann hann vel og gerði margt gott á þessum stutta tíma sem hann var.

En það er bara og bíða og sjá, kosningarnar eftir tæp tvö ár, það verður ansi spennandi að sjá hvernig fer þá…

Annars er ég að byrja í skólanum. Jájájá, fór og keypti skóladót og skólabækur. Mikið sem ég fegin að Ástan mín vinni enn í Pennanum, ekki það að ég hefði sjálfsagt fengið að misnota afsláttinn hjá einhverjum, en ég varð allavega mjög glöð.

Ég fékk í dag svona skóladagbók, það hef ég ekki fengið lengi lengi, mér fannst það mjög skemmtilegt.

Ég er búin núna að eyða síðasta hálftímanum eða svo í vinnunni að skoða hana og aukadótið í henni, milli þess sem ég vinn að sjálfsögðu… En þar er svona ýmislegt, manni til dundurs, hvernig stjörnumerkin eiga saman og margt margt fleira. Ég þarf helst að fá mér svona glimmer penna eða eitthvað til þess að skrifa í hana:-)

Annars er lítið að frétta, styttist óðum í ferðina út til Huldu, sem þýðir að það styttist óðum í Kirk Franklin, jeminn hvað ég get ekki beðið:)

Older Posts »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.